Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 14:34
Kári Snorrason
Guardiola: Af hverju ætti ég ekki að segja það sem mér finnst?
Pep fór yfir víðan völl á blaðamannafundi í hádeginu.
Pep fór yfir víðan völl á blaðamannafundi í hádeginu.
Mynd: EPA
Haaland hefur skorað tvö mörk í síðustu tólf leikjum.
Haaland hefur skorað tvö mörk í síðustu tólf leikjum.
Mynd: EPA
City mætir Liverpool á sunnudaginn.
City mætir Liverpool á sunnudaginn.
Mynd: EPA
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segist ekki ætla að hætta að tjá sig um alþjóðleg átök og samfélagsmál þrátt fyrir gagnrýni.

Pep mætti ekki á blaðamannafund í síðustu viku þar sem hann var frekar viðstaddur viðburði til stuðnings palestínskum börnum sem fram fór í hans heimaborg Barcelona.

Guardiola fordæmdi einnig átök í heiminum á blaðamannafundi á þriðjudag. Hann hefur bæði fengið lof og gagnrýni fyrir ummæli sín og var hann spurður út í gagnrýnina á blaðamannafundi í dag.

„Hvers vegna ætti ég ekki að segja það sem mér finnst, bara vegna þess að ég er stjóri. Ég er ekki sammála öllum en ég ber fulla virðingu fyrir öllum skoðunum. Ég sagði í raun að ég fordæmi öll þau átök sem eru í gangi um allan heim núna.“

Aðspurður hvort hann myndi nú halda sig eingöngu við að tala um fótbolta sagði Guardiola: „Þú einbeitir þér að því að vera blaðamaður og máttu þá ekki tala um efnahagsmál því þú ert ekki efnahagsblaðamaður?“

„Á ár eftir af saminngi“
Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Guardiola og hvort að hann muni skilja við City í sumar eftir tíu ára dvöl.

Pep var spurður á blaðamannafundinum hvort að stjórnendur félagsins vita hvað hann hyggst gera að tímabilinu loknu.

„Nei, vegna þess að ég á eitt ár eftir af samningi mínum. Þetta er nákvæmlega sama svar og ég gaf fyrir tveimur mánuðum.“

Haaland besti framherji heims
Erling Haaland hefur ekki verið í markaskónum að undanförnu. Hann hefur einungis skorað tvö mörk í síðustu tólf leikjum í öllum keppnum fyrir City.

Norðmaðurinn byrjaði á bekknum í deildarbikarnum í vikunni, Pep var spurður hvort að hann myndi snúa aftur í byrjunarliðið í stórleik umferðarinnar gegn Liverpool á sunnudaginn.

„Erling er besti framherji heims. Ég get ekki sagt til um það fyrr en á morgun. Eina sem ég get sagt er að hann er besti framherji heims.“
Athugasemdir
banner
banner