Real Madrid vill leikmenn Liverpool - Tonali efstur á óskalista Juve - Lewandowski gæti fengið nýjan samning
   fös 06. febrúar 2026 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Segir blaðamönnum að tala við Romero - „Ég hefði ekki gert þetta"
Cristian 'Cuti' Romero.
Cristian 'Cuti' Romero.
Mynd: EPA
Thomas Frank.
Thomas Frank.
Mynd: EPA
Cristian Romero, fyrirliði Tottenham, setti inn færslu á Instagram eftir jafntefli liðsins gegn Manchester City um síðusut helgi. Hann skaut föstum skotum að stjórnendum félagsins.

Romero þurfti að fara af velli í hálfleik vegna veikinda og sagði skammarlegt að einungis ellefu útileikmenn hefðu verið til taks í leikinn. Hann er ósáttur við að einungis tveir leikmenn, Conor Gallagher og hinn ungi Souza, voru keyptir í glugganum þegar mikið er um meiðsli í hópnum.

Þetta var ekki í fyrsta sinn á tímabilinu sem Romero tjáir sig á þenann hátt. Hann skaut líka á stjórnendur félagsins eftir tapleik gegn Bournemouth.

Thomas Frank, stjóri Tottenham, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í gær en framundan er leikur gegn Manchester United á morgun.

„Fegurðin við skrifaðan texta er að þú getur lesið mikið í hvernig hann er skrifaður. Enginn veit í raun hverju hann vildi koma fram, nema Cuti (Romero) eða þeir sem hafa talað við hann. Við höfum farið yfir þetta mál hér innanbúðar."

„Þetta sýnir að Cuti er mjög ástríðufullur. Hann vill vinna, gera allt svo hann og liðsfélagarnir afreki stóra hluti. Þið þurfið að spyrja hann næst þegar þið talið við hann. Það eru margar leiðir til að gera hlutina. Cuti hefur verið mjög góður fyrir okkur á þessu tímabili og fyrri tímabilum."

„Ég hefði ekki gert þetta. Það eru mín skilaboð,"
segir Frank.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 24 16 5 3 46 17 +29 53
2 Man City 24 14 5 5 49 23 +26 47
3 Aston Villa 24 14 4 6 35 26 +9 46
4 Man Utd 24 11 8 5 44 36 +8 41
5 Chelsea 24 11 7 6 42 27 +15 40
6 Liverpool 24 11 6 7 39 33 +6 39
7 Brentford 24 11 3 10 36 32 +4 36
8 Sunderland 24 9 9 6 27 26 +1 36
9 Fulham 24 10 4 10 34 35 -1 34
10 Everton 24 9 7 8 26 27 -1 34
11 Newcastle 24 9 6 9 33 33 0 33
12 Bournemouth 24 8 9 7 40 43 -3 33
13 Brighton 24 7 10 7 34 32 +2 31
14 Tottenham 24 7 8 9 35 33 +2 29
15 Crystal Palace 24 7 8 9 25 29 -4 29
16 Leeds 24 6 8 10 31 42 -11 26
17 Nott. Forest 24 7 5 12 24 35 -11 26
18 West Ham 24 5 5 14 29 48 -19 20
19 Burnley 24 3 6 15 25 47 -22 15
20 Wolves 24 1 5 18 15 45 -30 8
Athugasemdir
banner