Kantmaðurinn efnilegi Yan Diomande er búinn að skipta um umboðsteymi en hann er gríðarlega eftirsóttur.
Diomande vill skipta um félag en hann er ennþá með fjögur og hálft ár eftir af samningi við RB Leipzig.
Diomande er aðeins 19 ára gamall og hefur komið að 14 mörkum í 21 leik með Leipzig það sem af er tímabils.
Leipzig keypti Diomande úr röðum Leganés í fyrrasumar og borgaði þýska félagið upp riftunarákvæðið í samningi leikmannsins, sem hljóðaði upp á 20 milljónir evra. Núna vill Leipzig fá um 100 milljónir fyrir kantmanninn sinn.
Diomande er búinn að skipta yfir til Roc Nation Sports International umboðsskrifstofunnar frægu sem sér um skjólstæðinga á borð við Vinícius Júnior og Kevin De Bruyne.
Manchester United, Liverpool, PSG og FC Bayern eru meðal félagsliða sem hafa áhuga á Diomande, en hár verðmiði gæti fælt þau frá.
23.01.2026 22:40
Alltof dýr fyrir Tottenham og Man Utd
Athugasemdir




