Unai Emery þjálfari Aston Villa telur að Harvey Elliott geti reynst nytsamlegur fyrir liðið á seinni hluta tímabils.
Elliott er hjá félaginu á lánssamningi frá Liverpool en ef hann kemur við sögu í tíu leikjum í öllum keppnum virkist kaupákvæði sem hljóðar upp á 35 milljónir punda.
Hingað til hefur Elliott komið við sögu í sjö leikjum og er því aðeins þremur leikjum frá því að virkja ákvæðið.
Það er af þessari ástæðu sem Emery fær ekki leyfi til að nota leikmanninn í meira heldur en tveimur leikjum til viðbótar það sem eftir lifir tímabils. Villa vill ekki festa kaup á Elliott og ætlar því ekki að nota hann nema að Liverpool samþykki að breyta skilmálum lánsfyrirkomulagsins.
Aston Villa, sem er óvænt í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar, vill að kaupákvæðið sé tekið úr lánssamningnum til að Elliott geti hjálpað liðinu í vor.
„Harvey Elliott getur hjálpað okkur en þetta snýst ekki bara um hvað ég vil. Þetta snýst líka um hvað Liverpool vill. Þetta er bæði íþróttaleg og fjárhagsleg ákvörðun," segir Emery.
„Ég sagði við Harvey að það væri sanngjarnt af hálfu Liverpool að fjarlægja þetta kaupákvæði úr samningnum. Liverpool heldur á lyklinum.
„Hann er nógu góður til að spila. Hann á skilið að spila. Við erum búnir að ræða við Liverpool í þrjá mánuði um þetta ákvæði en við erum ekki búnir að sjá neinn árangur. Við erum að skaða leikmanninn með að leyfa honum ekki að spila, bæði við og Liverpool."
Aston Villa situr í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er auk þess búið að tryggja sér þátttökurétt í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Liðið mætir Newcastle í 32-liða úrslitum FA bikarsins næstu helgi.
30.01.2026 08:30
Staða Elliott óbreytt - Emery svekktur að missa Guessand
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 24 | 16 | 5 | 3 | 46 | 17 | +29 | 53 |
| 2 | Man City | 24 | 14 | 5 | 5 | 49 | 23 | +26 | 47 |
| 3 | Aston Villa | 24 | 14 | 4 | 6 | 35 | 26 | +9 | 46 |
| 4 | Man Utd | 24 | 11 | 8 | 5 | 44 | 36 | +8 | 41 |
| 5 | Chelsea | 24 | 11 | 7 | 6 | 42 | 27 | +15 | 40 |
| 6 | Liverpool | 24 | 11 | 6 | 7 | 39 | 33 | +6 | 39 |
| 7 | Brentford | 24 | 11 | 3 | 10 | 36 | 32 | +4 | 36 |
| 8 | Sunderland | 24 | 9 | 9 | 6 | 27 | 26 | +1 | 36 |
| 9 | Fulham | 24 | 10 | 4 | 10 | 34 | 35 | -1 | 34 |
| 10 | Everton | 24 | 9 | 7 | 8 | 26 | 27 | -1 | 34 |
| 11 | Newcastle | 24 | 9 | 6 | 9 | 33 | 33 | 0 | 33 |
| 12 | Bournemouth | 24 | 8 | 9 | 7 | 40 | 43 | -3 | 33 |
| 13 | Brighton | 24 | 7 | 10 | 7 | 34 | 32 | +2 | 31 |
| 14 | Tottenham | 24 | 7 | 8 | 9 | 35 | 33 | +2 | 29 |
| 15 | Crystal Palace | 24 | 7 | 8 | 9 | 25 | 29 | -4 | 29 |
| 16 | Leeds | 24 | 6 | 8 | 10 | 31 | 42 | -11 | 26 |
| 17 | Nott. Forest | 24 | 7 | 5 | 12 | 24 | 35 | -11 | 26 |
| 18 | West Ham | 24 | 5 | 5 | 14 | 29 | 48 | -19 | 20 |
| 19 | Burnley | 24 | 3 | 6 | 15 | 25 | 47 | -22 | 15 |
| 20 | Wolves | 24 | 1 | 5 | 18 | 15 | 45 | -30 | 8 |
Athugasemdir





