Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
banner
   sun 15. febrúar 2026 11:40
Brynjar Ingi Erluson
Fyrirliðinn frá keppni næstu vikurnar
Mynd: EPA
Þýski markvörðurinn Manuel Neuer verður ekki með Bayern München næstu vikur eftir að hafa rifið vöðva í kálfa í 3-0 sigri liðsins á Werder Bremen um helgina.

Neuer, sem er 39 ára gamall, á yfir 900 leiki á ferlinum en hann er samningsbundinn Bayern út þessa leiktíð.

Hann er enn mikilvægur í liði Bæjara og gegnir hlutverki fyrirliða. Það er því mikil blóðtaka fyrir liðið að missa hann á þessum tímapunkti tímabilsins.

Félagið hefur sent frá sér tilkynningu varðandi meiðsli Neuer en hann reif vöðva í kálfa og mun hann því missa af næstu leikjum liðsins.

Bayern á erfiða dagskrá fram undan í þýsku deildinni og á þá tvo leiki í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næsta mánuði.

Hinn 22 ára gamli Jonas Urbig kom inn á í stað Neuer gegn Bremen og mun líklega verja mark liðsins í næstu leikjum. Sven Ulreich verður honum til halds og trausts.


Athugasemdir
banner