Varnarmaðurinn Sverrir Ingi Ingason átti frábæran leik í vörn Panathinaikos sem vann dýrmætan 1-0 sigur á erkifjendum sínum í Olympiakos í grísku úrvalsdeildinni í kvöld.
Panathinaikos hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu en leikmenn mættu vel gíraðir í leikinn gegn Olympiakos.
Argentínumaðurinn Vicente Taborda skoraði eina mark leiksins á 7. mínútu.
Sverrir Ingi var í vörninni og átti frábæran leik ásamt þeim Erik Palmer-Brown og Tin Jedvaj.
Sigurinn var ótrúlega mikilvægur í Evrópubaráttu Panathinaikos sem er í 5. sæti með 32 stig, sex stigum frá Levadiakos og á leik til góða. Spennandi vikur framundan.
Levadiakos tapaði á meðan fyrir OFI Crete, 3-2, á Krít. Hörður Björgvin Magnússon var ekki með, en hann mun snúa aftur gegn OFI í seinni undanúrslitaleiknum í bikarnum á miðvikudag.
Arnór Sigurðsson er kominn aftur á fullt með sænska liðinu Malmö en hann skoraði eina mark liðsins í 2-1 tapi gegn Jeonbuk í æfingaleik. Markið gerði hann á 51. mínútu leiksins.
Sigurður Bjartur Hallsson byrjaði í fremstu víglínu hjá Merida sem vann Zamore, 2-0, í C-deildinni á Spáni. Hann gerði tilkall til að fá tvær vítaspyrnur í leiknum og setti þá boltann í netið, en markið var tekið af þar sem boltinn var farinn út af í aðdragandanum.
Merida er í 5. sæti í A-riðli C-deildarinnar með 35 stig og komnir upp í umspilssæti.
Athugasemdir



