Kobbie Mainoo átti frábæran leik þegar Man Utd lagði Tottenham í gær. Hann lagði upp fyrra mark leiksins á Bryan Mbeumo.
Mainoo var í fyrstinum undir stjórn Ruben Amorim en hefur verið fastamaður í liðinu síðan Michael Carrick tók við. Ian Wright, fyrrum leikmaður Arsenal, sagði að það væri andræðalegt fyrir Amorim hversu vel Mainoo hefur verið að spila.

„Mainoo kemur inn í liðið, hefur ekkert spilað og er ekki í frábæru formi. Þessi gæði, að spila á miðjunni sem allar spurningarnar hafa verið í kringum," sagði Wright.
„Maður heyrir Bruno Fernandes tala um að þeir hafi fengið frelsi til að tjá sig því þeir eru góðir leikmenn. Kobbie er mjög góður leikmaður. Ég er svo ánægður að við erum að sjá það núna."
„Þetta er mjög vandræðalegt fyrir Ruben Amorim til að vera algjörlega hreinskilinn. Af því það sem við sáum var ungur spennandi leikmaður Man Utd sem fékk ekki tækifæri til að spila og var mjög nálægt því að yfirgefa félagið. Hann var stórkostlegur í dag," sagði Wright að lokum.
Athugasemdir