Þýska félagið Bayern München ætlar að gera allt til þess að kaupa þýska landsliðsmanninn Florian Wirtz frá Bayer Leverkusen í sumarglugganum.
Wirtz er einn allra eftirsóttasti bitinn á markaðnum eftir að hafa átt stóran þátt í að gera Leverksuen að Þýskalandsmeisturum á síðustu leiktíð.
Sky í Þýskalandi segir að Bayern sé tilbúið að selja franska vængmanninn Kingsley Coman fyrir allt að 33 milljónir punda til þess að fjármagna kaupin á Wirtz. Leverkusen er sagt vilja meira en 100 milljónir punda fyrir Wirtz.
Coman, sem er 28 ára gamall, er sagður þéna um 14-15 milljónir punda í árslaun hjá Bayern og vill félagið losa sig við hann af launaskrá.
Samkvæmt miðlinum er Coman að horfa í þann möguleika að fara til Sádi-Arabíu og þar koma Al Hilal og Al Nassr helst til greina, en Liverpool hefur einnig spurst fyrir um franska landsliðsmanninn.
Samningur Coman rennur út 2027 en hann hefur spilað 327 leiki fyrir þýska stórveldið og skorað 69 mörk. Hann kom fyrst til félagsins á láni árið 2015 frá Juventus en skiptin voru gerð varanleg árið 2017.
Athugasemdir

