Franski sóknarleikmaðurinn Antoine Griezmann virtist vera á leið til Orlando City í MLS deildinni en Atlético Madrid harðneitar að leyfa honum að fara á viðkvæmum tímapunkti tímabilsins.
Griezmann er mikilvægur hlekkur í liði Diego Simeone þrátt fyrir hækkandi aldur og hefur komið með beinum hætti að 15 mörkum í 39 leikjum á tímabilinu.
Griezmann, sem verður 35 ára eftir tvær vikur, virðist vera mikilvægur partur af áformum Simeone og er Frakkinn með rúmt ár eftir af samningi við spænska stórveldið.
Griezmann er mjög spenntur fyrir að enda ferilinn sinn í Bandaríkjunum og gæti skipt yfir næsta sumar ef Orlando nær samkomulagi við Atlético um kaupverð.
„Griezmann verður áfram hjá okkur," staðfesti Mateu Alemany, stjórnandi hjá Atlético, eftir sigur liðsins gegn Real Sociedad í gær.
Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano tekur fram að Atlético gæti samþykkt að hleypa Griezmann til Orlando á frjálsri sölu til að sýna leikmanninum þakklæti og virðingu fyrir vel unnin störf.
06.03.2026 09:00
Vilja fá leikmann PSG til að taka við af Griezmann
Athugasemdir



