Man Utd hefur áhuga á Marcus Tavernier, miðjumanni Bournemouth, Emery gæti yfirgefið Aston Villa, Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid. Þetta og fleira í slúðurpakka dagsins.
Marcus Tavernier, 26, miðjumaður Bournemouth er á óskalista Man Utd. (Mail)
Líklegt er að Unai Emery yfirgefi Aston Villa í sumar þar sem pirringur spænska þjálfarans vegna fjárhagslegra takmarkana í kringum félagið eykst. (Football Insider)
Leit Newcastle United að nýjum markverði aðalmarkverði verður mikilvæg fyrir stjórann Eddie Howe þar sem form Nick Pope hefur hrakað og Newcastle vill ekki gera lánssamning Aaron Ramsdale frá Southampton varanlegan. (The Athletic)
Umboðsmenn Jurgen Klopp, fyrrum stjóra Liverpool, segja að fréttir um viðræður við Real Madrid séu aðeins orðrómar. (Goal)
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur heitið því að lið hans verði betra á næsta tímabili og gefið í skyn að hann standi við síðasta árið af samningi sínum eftir vangaveltur um að þetta gæti verið síðasta tímabil Spánverjans. (Sky Sports)
Edu mun láta af störfum sem yfirmaður fótboltamála hjá Nottingham Forest aðeins átta mánuðum eftir að hann var ráðinn, en starfslokaskilmálar Brasilíumannsins eru að verða klárir. (Talksport)
Framtíð Fabian Schar og Kieran Trippier eru einnig í óvissu hjá Newcastle þar sem félagið á í hættu á að missa af sæti í Evrópukeppni á næstu leiktíð. (ChronicleLive)
Búist er við því að Bernardo Silva, 31, muni yfirgefa Man City í sumar á frjálsri sölu þar sem viðræður um nýjan samning eru ekki í gangi. (Matteo Moretto)
Man City vill fá Felix Nmecha aftur ef félaginu tekst ekki að næla í Elliot Anderson. Þessi 25 ára gamli miðjumaður hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína hjá Dortmund á þessari leiktíð. (Football Insider)
Liverpool er að auka áhuga sinn á Murillo, varnarmanni Nottingham Forest. Félagið telur að það geti fengið þennan 23 ára gamla brasilíumann fyrir 70 milljónir punda. (Fichajes)
Arsenal er að undirbúa sig fyrir því að reyna að fá miðjumanninn Sandro Tonali frá Newcastle United í sumar, en Manchester City og Manchester United hafa einnig áhuga á 25 ára gamla ítalska landsliðsmanninum. (Tuttosport)
Athugasemdir


