Andy Robertson var sterklega orðaður frá Liverpool síðasta sumar en Liverpool var í viðræðum við Tottenham.
Eftir komu Milos Kerkez hefur Robertson verið í minna hlutverki á þessu tímabili en hann hefur komið við sögu í 27 leikjum í öllum keppnum.
Hann minnti á sig á föstudaginn þegar hann skoraði og lagði upp í 3-1 sigri liðsins gegn Wolves í enska bikarnum.

„Það var augljóslega frá Tottenham og viðræður áttu sér stað við bæði félögin, en niðurstaðan var sú að ég vildi vera áfram,“ sagði Robertson, sem verður 32 ára á miðvikudaginn.
„Ég var aldrei óskuldbundinn. Ég hef verið skuldbundinn Liverpool síðustu átta og hálft eða níu árin og ég mun vera það þangað til mín er ekki lengur þörf hjá Liverpool. Það hefur alltaf verið hugarfarið mitt.“
Athugasemdir