Baldvin Jón Hallgrímsson þjálfari Aftureldingar var glaður með að taka þrjú stig með sér í Mosfellsbæinn úr Mjóddinni í kvöld en sigur liðsins var sá fyrsti í deildinni síðan 6.júlí.
"Ég man svosem ekki hvaða dag síðasti sigur kom. En það var þvílíkur léttir að sigra í dag gegn erfiðu ÍR-liði"
"Ég man svosem ekki hvaða dag síðasti sigur kom. En það var þvílíkur léttir að sigra í dag gegn erfiðu ÍR-liði"
Afturelding jafnaði leikinn í uppbótartíma fyrri hálfleiks, var ekki mikill léttir að fara með jafna stöðu inn í hléið.
"Jújú, það skiptir svo sem ekki máli á hvaða mínútu er skorað en það skipti máli að fara með jafnt í hálfleik."
Sigurmark Aftureldingar kom úr víti sem þjálfari ÍR var ósáttur við að væri dæmt, hver var sýn Baldvins á það?
"Það væri náttúrulega skrýtið ef að hann væri ekki ósáttur við að fá á sigvíti en þetta var 70 metra frá mér en dómarinn dæmdi víti og þá er bara víti."
Alexander Aron setti bæði mörk Mosfellinga í kvöld og Baldvin var afar ánægður með hans framlag.
"Alli var ógeðslega góður fyrir okkur og setti tvö frábær mörk en það voru allir góðir, mikil vinnusemi og ég var gríðarlega ánægður með alla í liðinu".
Baldvin lék um sinn með ÍR, gerði það sigur kvöldsins enn sætari fyrir hann?
"Það er gaman að vinna leiki, skiptir mig engu máli hvar. Ég var hérna í 2 ár og það var fínn tími, þetta er flottur völlur og gaman að sigra hérna, ekki spurning."
Það var ekki hægt annað en að spyrja Baldvin sem var íklæddur huggulegum Adidas jakka merktum Liverpool við misjafna gleði Aftureldingarfólks í stúkunni um hans þátt í stóra Suarez málinu. Eins og fólki er í fersku minni skírði hann hundinn sinn Torres um árið og sá fór. Hefur Baldvin skýrt eitthvert dýr Suarez og þar með hugsanlega ýtt undir brotthvarf hans? Svarið við því auk þess sem Baldvin rýnir í toppstöðuna í 2.deild með því að hlusta á viðtalið sem fylgir fréttinni.






















