Preussen Münster tapaði heimaleik gegn Hertha Berlin í næstefstu deild þýska boltans í gær og var afar áhugavert atvik sem átti sér stað í uppbótartíma fyrri hálfleiks.
Gestirnir frá Berlín vildu fá dæmda vítaspyrnu en Felix Bickel dómari flautaði ekki. Eftir athugun í VAR-herberginu var Bickel sendur í skjáinn en hann gat ekki skoðað atvikið nánar útaf því að það kviknaði ekki á skjánum.
Þegar engin lausn fannst var ákveðið að leyfa VAR-teyminu að ráða og því var vítaspyrna dæmd án þess að Bickel sjálfur sæi atvikið endursýnt.
Miðlar í Þýskalandi fjölluðu um málið og eftir skoðun á öryggismyndavélum tilkynnti heimalið Preussen Münster að grímuklæddur áhorfandi hafði klifrað niður úr stúkunni til að taka VAR-skjáinn úr sambandi.
„Preussen Münster harmar atvikið og mun gera allt í sínu valdi til að bera kennsl á sökudólginn," segir meðal annars í tilkynningu frá félaginu.
„Við höfum gert ráðstafanir til að koma í veg fyrir að þetta geti endurtekið sig í framtíðinni."
Eftir að skjárinn var tekinn úr sambandi birtist borði meðal áhorfenda heimaliðsins sem á stóð: „Slökkvum á VAR".
Athugasemdir


