Jose Mourinho, stjóri Benfica, fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiks erkifjendanna Benfcia og Porto í portúgölsku úrvalsdeildinni í gær.
Mourinho gagnrýndi aðstoðarþjálfara Porto í viðtali eftir leik og sagði að hann hefði kallað sig svikara 50 sinnum. Mourinho er fyrrum stjóri Porto, vann þrennuna með liðinu tímabilið 2003/04.
Mourinho gagnrýndi aðstoðarþjálfara Porto í viðtali eftir leik og sagði að hann hefði kallað sig svikara 50 sinnum. Mourinho er fyrrum stjóri Porto, vann þrennuna með liðinu tímabilið 2003/04.
„Dómarinn sagði að hann hefði rekið mig af velli því ég sparkaði bolta í átt að bekk Porto, sem er alrangt. Oft eftir mörk hef ég sparkað í bolta upp í stúku til að gefa einum heppnum aðdáanda. Ég veit að ég er ekki tæknilega góður, en þetta átti að fara upp í stúku," sagði Mourinho.
Lucho Gonzalez, aðstoðarþjálfari Porto, fékk einnig rauða spjaldið. Mourinho staðfesti að það hefði verið ósætti þeirra á milli.
„Hann kallaði mig svikara 50 sinnum í göngunum. Ég væri til í að fá útskýringu á því hvað ég sveik? Ég fór til Porto, gaf félaginu sál mína, fór til Chelsea, Inter, Real Madrid og ferðaðist um heiminn, gaf líf mitt og sál allar 24 klukkustundir sólarhringsins. Þannig er að vera fagmaður."
„Það er eitt að fá á sig fúkyrði frá stuðningsmönnum. En að annar þjálfari kalli mig svikara, af hverju? Hvern sveik ég? Með því að gefa allt sem ég á til Benfica? Hvern er ég að svíkja? Ég var ekki hrifinn af þessu," sagði Mourinho.
Benfica jafnaði undir lok venjulegs leiktíma og enduðu leikar með 2-2 jafntefli. Porto er í góðri stöðu á toppi deildarinnar, fjögur stig eru niður í Sporting og sjö í Benfica þegar níu umferðir eru eftir.
José Mourinho's post match statements????
— IM???????? (@Iconic_Mourinho) March 8, 2026
"About the red card… the guy from Porto's bench called me a traitor 50 times. I'd like an explanation: I am a trator how? How? I was at Porto, and I gave Porto my soul. I went to Chelsea, and I gave Chelsea my soul. I went to Real Madrid,… pic.twitter.com/w6llsKY3Ti
Athugasemdir




