Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 14:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
„Óneitanlega æðisleg tilfinning að komast inn á völlinn aftur"
Fyrstu mínúturnar eftir krossbandsslit
Kvenaboltinn
Natasha ásamt dóttur sinni.
Natasha ásamt dóttur sinni.
Mynd: Aðsend
Á að baki níu A-landsleiki og fór með á EM í Sviss í fyrra.
Á að baki níu A-landsleiki og fór með á EM í Sviss í fyrra.
Mynd: KSÍ
Úr frábærum sigurleik gegn Þýskalandi 2024.
Úr frábærum sigurleik gegn Þýskalandi 2024.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonan Natasha Anasi lék á laugardag sinn fyrsta leik frá því að hún sleit krossband síðasta sumar. Natasha samdi við nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur í vetur eftir að hafa leikið með Val.

Hún lék lokakaflann í Lengjubikarnum gegn Þrótti á laugardag. Natasha, sem er 34 ára fjölhæfur leikmaður, ræddi við Fótbolta.net um endurkomuna.

„Það var óneitanlega æðisleg tilfinning að komast inn á völlinn aftur. Eftir löng meiðsli þá er það alltaf stórt augnablik og viss þröskuldur sem maður er að yfirstíga. Ég vissi ekki hvort það yrði þessi leikur eða næsti en mér fannst ég vera tilbúin og var með leyfi sjúkraþjálfara þannig bara frábært að vera búin að taka þetta fyrsta skref til baka."

„Leikurinn sem slíkur kannski ekki sá besti og veðrið hafði töluverð áhrif en á sama tíma hægt að taka fullt jákvætt með inn í loka undirbúninginn,"
segir Natasha við Fótbolta.net.

Hvernig líður þér í líkamanum núna?

„Ég spilaði auðvitað bara 10 mínútur þannig ég er nánast eins og ný líkamlega. Auðvitað öðruvísi tempó í alvöru leik en mér líður vel og er strax tilbúin í næstu áskoranir."

Hvernig hefur endurkoman gengið?

„Endurkoman hefur gengið bara mjög vel heilt yfir. Ég hef komið vel út úr styrktarmælingum jafnt og þétt í gegnum allt ferlið og svo núna eftir að ég mátti taka þátt í meiri fótbolta hefur þetta verið góður gangur þó maður þurfi alltaf að fara varlega fyrst um sinn."

Mikil jákvæð orka í kringum félagið
Hvernig hafa fyrstu mánuðirnir með Grindavík/Njarðvík verið?

„Fyrstu mánuðirnir hafa verið ótrúlega skemmtilegir. Ég er að kynnast stelpunum og þjálfarateyminu og mér líst mjög vel á hópinn sem við erum að setja saman. Það er mikil jákvæð orka í kringum félagið og maður finnur fyrir uppganginum. Núna erum við að fá glænýjan klefa fyrir liðið og ég veit að það verður alltaf stemning með liðinu okkar í sumar."

Horfir í efri hlutann
Hvernig líst þér á sumarið?

„Mér líst rosa vel á sumarið og er bara virkilega bjartsýn á að við komum á óvart sem nýliðar. Við eigum eftir að setjast saman sem hópur og skilgreina markmið en ef ég tala bara frá mínu hjarta þá er auðvitað fyrsta skref að festa liðið í sessi sem Bestu deildar lið en ég mun horfa á að komast í efri hlutann í deildinni og tel að það sé raunhæfur möguleiki."

Af hverju ekki frammi?
Hefur verið rætt hvort þú spilir á miðju eða í vörn?

„Eða kannski bara frammi í strikernum?" segir Natasha á léttu nótunum.

„Annars kemur það bara í ljós þegar ég er orðin tilbúin í 90 mínútur. Ég er auðvitað hafsent fyrst og fremst en í Bestu deildinni hef ég spilað allskonar stöður á ferlinum. Ég vil bara spila þar sem ég get hjálpað okkur að spila góðan fótbolta og vinna fótboltaleiki - það er síðan þjálfarinn sem ákveður hvar hann telur að ég sé best fyrir liðið," segir Natasha að lokum.
Athugasemdir
banner