Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   mán 09. mars 2026 16:30
Kári Snorrason
Tekst Úlfunum hið ótrúlega?
Ofurtölvan segir 99.9% líkur á að Úlfarnir falli.
Ofurtölvan segir 99.9% líkur á að Úlfarnir falli.
Mynd: EPA
Rob Edwards.
Rob Edwards.
Mynd: EPA
Úlfarnir standa frammi fyrir vægast sagt erfiðu verkefni í baráttunni um að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni.

Liðið setti met eftir að hafa verið án sigurs í fyrstu nítján leikjum sínum og gerði félagið góða atlögu að ellefu stiga meti Derby.

Eftir að hafa byrjað árið með þrjú stig hefur aðeins birt til en liðið hefur unnið síðustu tvo deildarleiki sína, gegn Aston Villa og Liverpool. Liðið situr þó enn á botni deildarinnar með sextán stig.

Úlfarnir eru tólf stigum frá öruggu sæti nú þegar þeir eiga átta leiki eftir. Þá hefur liðið einnig leikið einum leik meira en meirihluti þeirra liða sem eru fyrir ofan. Samkvæmt ofurtölvu Opta eru 99,9 prósent líkur á að liðið falli úr deildinni.

Sagan hefur þó kennt okkur að aldrei skal útiloka kraftaverk. West Brom varð árið 2005 fyrsta liðið til að halda sæti sínu eftir að hafa verið á botninum um jól.

Leicester fór einnig úr neðsta sæti með átta leiki eftir árið 2015 og endaði í 15. sæti áður en liðið vann síðan deildina tímabilið á eftir.

Úlfarnir þurfa að minnsta kosti fjóra sigra til að ná Nottingham Forest og West Ham, auk þess sem þau lið mega helst ekki bæta við sig stigum.

Úlfarnir mæta engu liði sem er í efstu sex sætum deildarinnar í síðustu átta leikjunum og mætir liðið meðal annars West Ham Tottenham og Leeds sem eru jafnframt í fallbaráttu.

Síðustu átta leikir Wolves:
Brentford (Ú)
West Ham (Ú)
Leeds (Ú)
Tottenham (H)
Sunderland (H)
Brighton (Ú)
Fulham (H)
Enski boltinn - Hveitibrauðsdagarnir að baki
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner