Maguire og Fernandes áfram á Old Trafford - Silva til í að fara - Endrick í úrvalseildina - Semenyo til Man Utd?
   fim 09. október 2025 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Æfingahópur U17 - Tveir Dalvíkingar
Kvenaboltinn
Ingibjörg er ein af sex FH-ingum í hópnum.
Ingibjörg er ein af sex FH-ingum í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elísa Birta er í hópnum.
Elísa Birta er í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Margrét Magnúsdóttir hefur valið sinn fyrsta hóp frá því að hún tók við starfi U17 kvenna, tilkynnt var um þá breytingu fyrr í dag. Hópurinn æfir dagana 22. og 23. október í Miðgarði í Garðbæ.

Æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM 2026. Ísland mætir þar Slóveníu og Færeyjum í fyrri umferð undankeppninnar, en leikið verður í Slóveníu. Ísland mætir Færeyjum 8. nóvember og Slóveníu 11. nóvember.

Líkt og í síðasta U17 hóp koma flestar frá FH, eða sex talsins. Það vekur athygli að Dalvík er með tvo fulltrúa í hópnum.

Hópurinn
Hólmfríður Birna Hjaltested - Afturelding
Anna Katrín Ólafsdóttir - Álftanes
Ásthildur Lilja Atladóttir - Álftanes
Rósa María Sigurðardóttir - Álftanes
Tinna María Heiðdísardóttir - Álftanes
Viktoría Skarphéðinsdóttir - Álftanes
Karen Hulda Hrafnsdóttir - Dalvík
Ragnheiður Sara Steindórsdóttir - Dalvík
Anna Heiða Óskarsdóttir - FH
Eva Marín Sæþórsdóttir - FH
Hafrún Birna Helgadóttir - FH
Ingibjörg Magnúsdóttir - FH
Ragnheiður Th. Skúladóttir - FH
Steinunn Erna Birkisdóttir - FH
Unnur Th. Skúladóttir - FH
Elísa Birta Káradóttir - HK
Sigrún Ísfold Valsdóttir - HK
Edda Dögg Sindradóttir - ÍBV
Ísey María Örvarsdóttir - ÍBV
Kristín Klara Óskarsdóttir - ÍBV
Hilda Rún Hafsteinsdóttir - Keflavík
Kara Guðmundsdóttir - KR
Matthildur Eygló Þórarinsdóttir - KR
Rakel Grétarsdóttir - KR
Björgey Njála Andreudóttir - Selfoss
Erika Ýr Björnsdóttir - Stjarnan
Lísa Ingólfsdóttir - Valur
Anika Jóna Jónsdóttir - Víkingur R.
Arna Ísold Stefánsdóttir - Víkingur R.
Bríet Fjöla Bjarnadóttir - Þór/KA
Emma Sóley Arnarsdóttir - Þróttur R.
Athugasemdir
banner