West Ham varð í gær síðasta liðið til að komast í 8-liða úrslit enska bikarsins með því að leggja Brentford að velli með sigri í vítaspyrnukeppni.
Dango Ouattara reyndist skúrkurinn þegar hann reyndi Panenka vítaspyrnu, vippaði á mitt markið, en Alphonse Areola í marki West Ham stóð kyrr og greip vippuna.
West Ham skoraði úr öllum fimm spyrnum sínum, allar voru þær mjög góðar, og tryggði sér leik gegn Leeds í 8-liða úrslitunum. Það helsta úr leiknum má sjá í spilaranum hér að neðan.

West Ham 2 - 2 Brentford
1-0 Jarrod Bowen ('19 )
1-1 Igor Thiago ('28 )
2-1 Jarrod Bowen ('34 , víti)
2-2 Igor Thiago ('81 , víti)
(5-3 í vítaspyrnukeppni)
Athugasemdir