Watkins orðaður við United - Bayern sýnir Díaz áhuga - Arsenal hefur rætt við Eze
   lau 10. maí 2025 20:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: KR upp í annað sætið - Eiður Gauti funheitur
Eiður Gauti Sæbjörnsson
Eiður Gauti Sæbjörnsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alexander Rafn Pálmason
Alexander Rafn Pálmason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR 4 - 1 ÍBV
1-0 Alexander Rafn Pálmason ('8 )
1-1 Sigurður Arnar Magnússon ('24 )
2-1 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('37 )
3-1 Ástbjörn Þórðarson ('82 )
4-1 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('86 )
Lestu um leikinn

KR er komið upp í 2. sæti Bestu deildarinnar eftir sigur á nýliðum ÍBV í kvöld.

Hinn 15 ára gamli Alexander Rafn Pálmason raðar inn metunum en hann varð yngsti leikmaðurinn til að byrja leik í efstu deild í kvöld. Það tók hann átta mínútur að skora sitt fyrsta mark í efstu deild.

Hann fékk boltann inn á teignum og lét vaða og boltinn söng í netinu. Hann bætti met Eiðs Smára Guðjohnsen og er yngsti markaskorari deildarinnar.

Sigurður Arnar Magnússon jafnaði metin fyrir ÍBV þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirjgöf frá Bjarka Birni Gunnarssyni.

Eiður Gauti Sæbjörnsson kom KR aftur yfir þegar hann fylgdi á eftir skoti frá Matthias Præst sem Marcel Zapytowski varði út í teiginn. KR með 2-1 forystu í hálfleik.

Ástbjörn Þórðarson kom inn á í fyrri hálfleik fyrir meiddan Luke Rae. Hann bætti þriðja markinu við undir lok leiksins. Eiður Gauti innsiglaði síðan sigurinn þegar hann fylgdi á eftir skoti frá Ásbirni. Eiður Gauti hefur skorað í fimm leikjum í röð og er kominn með fiimm mörk í deildinni.
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 13 9 2 2 26 - 14 +12 29
2.    Breiðablik 13 8 2 3 24 - 18 +6 26
3.    Valur 13 7 3 3 35 - 19 +16 24
4.    Stjarnan 13 6 2 5 24 - 24 0 20
5.    Fram 13 6 1 6 21 - 18 +3 19
6.    Vestri 13 6 1 6 13 - 11 +2 19
7.    Afturelding 13 5 2 6 15 - 17 -2 17
8.    KR 13 4 4 5 34 - 34 0 16
9.    FH 13 4 2 7 19 - 19 0 14
10.    ÍBV 13 4 2 7 13 - 21 -8 14
11.    KA 13 3 3 7 12 - 25 -13 12
12.    ÍA 13 4 0 9 15 - 31 -16 12
Athugasemdir
banner