Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
banner
   mið 11. mars 2026 10:09
Elvar Geir Magnússon
Myndi spila eins ef 1-6 tapleikurinn yrði spilaður aftur
Raffaele Palladino.
Raffaele Palladino.
Mynd: EPA
Bayern München tók Atalanta í kennslustund og vann 6-1 útisigur þegar liðin mættust í fyrri viðureign sinni í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.

Raffaele Palladino, stjóri Atalanta, viðurkennir að mikill gæðamunur sé á liðunum en kýs að horfa á glasið hálffullt og segir að lið sitt verði betra eftir þennan leik.

„Ég vil hrósa Bayern, þetta er virkilega sterkt lið og þeir voru óviðráðanlegir á köflum. Bestir í okkar liði voru stuðningsmennirnir." segir Palladino.

„Þetta er reynsla sem hjálpar okkur að vaxa. Ég myndi fara eins inn í leikinn ef hann yrði spilaður aftur."

Atalanta á annan erfiðan leik næsta, þá gegn toppliði ítölsku A-deildarinnar í Inter. Palladino segir að sitt lið hafi alltaf svarað tapleikjum á réttan hátt og vonast til þess að sú verði áfram raunin.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner