Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
   þri 11. apríl 2023 18:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Farið að líta talsvert betur út en þegar við vorum 5-0 undir á móti ÍR"
Þjálfarateymi Ægis; Nenad og Baldvin.
Þjálfarateymi Ægis; Nenad og Baldvin.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Gaman að fá að máta okkur við þessi stærri og sterkari lið landsins og gaman að fá þau í Þorlákshöfnina. Ég vona bara að Nenad sé að vinna hörðum að því að gera völlinn kláran," sagði Baldvin Már Borgarsson, aðstoðarþjálfari Ægis, eftir að hann dró sitt lið á móti FH í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

„Ég hefði viljað fá Val og reyna sparka aðeins í Tryggva Hrafn og Sigga Lár, en ef ekki þá hefði ég viljað fá RB eða Uppsveitir - hreinskilinn með það."

Rúmar þrjár vikur eru í að Lengjudeildin hefjist. Hvernig líta hlutirnir út hjá Ægi?

„Þetta er farið að líta talsvert betur út heldur en þegar við vorum að tapa fyrir Augnabliki og vorum 5-0 undir í hálfleik á móti ÍR. Við ætlum að taka einmitt æfingaleik á móti ÍR á föstudaginn og sjá hvort við séum ekki komnir á betri stað en fyrir rúmlega mánuði síðan. Ég er bjartsýnn og finnst þetta líta ágætlega út."

Baldvin segir að leikmannahópurinn sé orðinn klár fyrir sumarið, en hvað þurfa Ægismenn að gera til þess að vinna FH eftir viku?

„FH-ingarnir hafa ekki verið á góðu skriði síðustu 1-2 árin og maður sér alveg möguleika í því að berja aðeins á þeim. Þeir eru með mjög gott lið og komnir kannski í betri farveg en fyrir ári síðan."

„En við unnum Fylki þegar við vorum 2. deildar lið að spila við topp Lengjudeildarlið, núna erum við Lengjudeildarlið að spila við gott Bestu deildar lið og ég sé alveg möguleika. Að spila þetta heima verður bara skemmtilegt,"
sagði Baldvin.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner