Martin Skrtel, fyrrum varnarmaður Liverpool, segist ekki ætla að leggja skóna á hilluna þrátt fyrir að hafa meiðst alvarlega á milli jóla og nýárs.
Hinn 36 ára gamli Skrtel sleit hásin í leik með Istanbul Basaksehir í Tyrklandi á dögunum.
Slóvakinn spilar ekki meira á þessu tímabili og í vikunni komst hann að samkomulagi um að rifta samningi sínum hjá Istanbul Basaksehir.

Daily Mail sagði frá þessu og bætti við að Skrtel væri að íhuga að leggja skóna á hilluna frægu.
Skrtel svaraði fyrir sig á Instagram í dag og ef marka má orð hans þá ætlar hann að halda áfram að spila.
Emphatic response from former #LFC defender Martin Skrtel to reports he was considering retiring after rupturing his Achilles pic.twitter.com/yoqsZ869MV
— James Pearce (@JamesPearceLFC) January 13, 2021
Athugasemdir