Salfford City heimsækir Manchester City í 4. umferð enska bikarsins á morgun. Liðin mættust líka á síðasta tímabili og vann þá Man City 8-0 sigur.
Karl Robinson, stjóri Salford, vill ekki sjá menn skipta á treyjum við leikmenn andstæðinganna í hálfleik.
Karl Robinson, stjóri Salford, vill ekki sjá menn skipta á treyjum við leikmenn andstæðinganna í hálfleik.
„Úrslitin í fyrra voru erfið. Eftir leikinn unnum við held ég bara einn af nætu tólf leikjum - þetta hafði mikil áhrif á gengið okkar í deildinni. Ég skal vera hreinskilinn við ykkur, ég var að horfa á leikinn í gær (Man City - Fulham á miðvikudagskvöld) og ég slökkti í hálfleik - mér fannst tilgangslaust að horfa," segir Robinson við talkSPORT.
„Þegar þú sérð hlaupið yfir gæðalið Fulham í 45 mínútur þá hugsaði ég að ég gæti ekki beðið eftir að sjá mína stráka gera þetta á laugardag."
„Það er eins gott að leikmenn biðji ekki um treyjur þeirra í hálfleik - ég verð brjálaður ef þeir gera það."
Leikflöturinn sem Salford spilar venjulega á er minni en sá sem er á Etihad, heimavelli Man City.
„Við höfum æft alla vikuna, stækkað völlinn, svo hann er stærri en við spilum venjulega á. Við spiluðum 11 gegn 11 og breyttum svo í 14 á móti 11 svo menn sæju hversu erfitt þetta yrði. Við erum meðvitaðir að við verðum líklega lítið með boltann stóran hluta leiksins. Við erum vanir að hafa boltann mikið en við munum ekki snerta hann oft á laugardag. Það er erfitt að kyngja því, en þú þarft aðgera það því andstæðingurinn er það góður," sagði Robinson.
Salford situr í 6. sæti ensku D-deildarinnar og framundan er þétt leikjaprógramm hjá liðinu.
Athugasemdir



