Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
banner
   fös 13. febrúar 2026 12:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Forseti Barcelona bálreiður: Óásættanlegt að bíða í 8 mínútur eftir ákvörðun
Mynd: EPA
Það átti sér stað athyglisvert atvik í spænska Konungsbikarnum í gær þegar Atletico Madrid tók á móti Barcelona. Atletico leiddi 4-0 í hálfleik en gestirnir frá Katalóníu komu sterkari út í seinni hálfleikinn og tókst að koma boltanum í netið snemma í seinni hálfleik.

Það mark fékk hins vegar ekki að standa eftir mjög langa VAR skoðun. Pau Cubarsi kom boltanum í netið en rangstaða var dæmd í aðdragandaum. Atvikið er mjög umdeilt en boltinn fór af Robert Lewandowski og til Cubarsi. Stuðningsmenn Barcelona eru sannfærðir um að um mistök sé að ræða í dómgæslunni.

Rafa Yuste, sem er bráðabirgða forseti Barcelona, ræddi við fjölmiðla eftir leikinn og staðfesti að stjórnarmenn væru jafn reiðir og stuðingsmenn.

Hann var mjög vonvikinn með atvikið í byrjun seinni hálfleiks.

„Ég vil lýsa því sem skammarlegu. Við biðum í átta mínútur eftir ákvörðun. Sem forseti vil ég segja að við munum krefjast útskýringar. Það er óásættanlegt að bíða í átta mínútur eftir niðurstöðu," er haft eftir Yuste á Mundo Deportivo.

Hansi Flick sagði eftir leikinn að Barcelona hefði nú tvo 45 mínútna hálfleiki og þyrftu að skora tvö mörk í hvorum þeirra til að jafna einvígið. Seinni leikurinn fer fram á Nývangi 3. mars. Flick var ósáttur við dómarann eftir leik.

„Hvað get ég sagt? Fyrir mér er þetta rugl. Hversu lengi þrufum við að bíða? Sjö mínútur? Bara til að finna eitthvað. Ég veit það ekki. Þetta var ekki rangstaða fyrir mér. Ég sá þetta á annan hátt. Þeir útskýrðu ekki neitt fyrir okkur þegar markið var tekið af. Það voru engin samskipti. Ég skil ekki af hverju þetta var rangstaða. Þetta er hörmung."



Athugasemdir
banner
banner