Spyrnir mun ekki leika í 5. deildinni í sumar þar sem Rekstrarfélag Hattar hefur ákveðið að draga liðið úr keppni.
Höttur segir þetta vera erfiða ákvörðun þar sem Spyrnir hefur notið mikilla vinsælda og gengið vel síðustu ár, en liðið fékk 24 stig úr 14 leikjum í deildarkeppni í fyrra.
„Miklar breytingar á leikmannahópi Hattar þar sem rúmlega heilt byrjunarlið frá síðasta tímabili verður ekki með í sumar auk þess að nokkrir máttarstólpar í liði Spyrnis síðustu ára hafa horfið í önnur verkefni er þess valdandi að við erum ekki nálægt því að geta haldið úti tveimur liðum í meistaraflokki. Það verður síðan að minnast á að gífurlegur ferðakostnaður og hækkun á skráningargjaldi í 5. deildina gera það nærri fjárhagslega ómögulegt að leggja upp í þá vegferð sem við sáum fyrir okkur," segir meðal annars í færslu frá Hetti.
Höttur mun þó senda lið til leiks í Íslandsmeistaramót 2. flokks í samstarfi við KFA, Sindra og Neista. Auk þess mun Höttur/Huginn leika í 3. deild eftir fall í fyrra.
Ungir leikmenn Spyrnis geta því spilað með 2. flokki Hattar og verið um leið gjaldgengir í leiki með meistaraflokki Hattar/Hugins.
„Við þökkum góðan stuðning við Spyrnis verkefnið síðustu 4 ár og hvetjum félög á næsta landsþingi KSÍ sem haldið verður á Egilsstöðum eftir tvær vikur til að beita sér fyrir jöfnun ferðakostnaðar svo félög sem okkar sem þurfa ferðast langar vegalengdir í flesta leiki þurfi ekki að taka sambærilegar ákvarðanir og þessa."
Athugasemdir




