Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
banner
   fös 13. mars 2026 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Celtic ver stuðningsmennina eftir blóðug átök - Rangers fordæmir hegðunina
Mynd: EPA
Blóðug slagsmál brutust út milli stuðningsmanna Rangers og Celtic eftir sigur Celtic eftir vítaspyrnukeppni í 8-liða úrslitum skoska bikarsins um síðustu helgi.

Stuðningsmenn Celtic brutust inn á völlinn til að fagna sigrinum en reiðir stuðningsmenn Rangers fylgdu á eftir og í kjölfarið brutust út slagsmál og lögreglan þurfti að skerast í leikinn.

Skoska lögreglan gagnrýndi forráðamenn félagana að hafa ekki tjáð sig um slagsmálin fyrr en bæði félög hafa nú tjáð sig. Brian Wilson, bráðabirgða formaður Celtic, varði stuðningsmenn liðsins.

„Þetta voru frábær úrslit og allir Celtic-aðdáendur fögnuðu þeim. Það er miður að atburðirnir eftir leikinn hafi skyggt á úrslitin, þann frábæra anda og seiglu sem leikmenn okkar sýndu við að ná þeim og stjórnunarhæfileika Martins og liðs hans," sagði Wilson.

„Ég varð fyrir vonbrigðum með athugasemdir lögreglustjórans. Hún veit væntanlega að Celtic vinnur náið með lögreglunni. Við virðum hlutverk öryggisráðgjafarhópsins og þegar vísbendingar eru um óásættanlega hegðun grípum við til aðgerða gegn einstaklingum og hópum. Ef hægt væri að leysa þetta með fordæmandi ummælum - hefði þetta verið leyst fyrir áratugum.“

Rangers sendi frá sér yfirlýsingu þar sem félagið fordæmdi hegðun stuðningsmanna.

„Nú eru fjölmörg alvarleg mál sem þarfnast ítarlegrar skoðunar. Þess vegna erum við sammála um að óháð endurskoðun ætti að fara fram á atburðum í kringum leikinn.

Sú endurskoðun verður að vera ítarleg og víðtæk og skoða ákvarðanir og aðgerðir allra viðeigandi aðila. Umfang hennar verður að ná yfir víðara samhengi þessa leiks, allt frá upphaflegum ákvörðunum um úthlutun miða til atvika sem fylgdu leiknum."



Athugasemdir
banner
banner