KA tilkynnti í morgun um komu Danijels Dejan Djuric til félagsins, hann var keyptur frá króatíska félaginu Istra og skrifaði undir þriggja ára samning fyrir norðan.
KA menn eru alls ekki hættir á markaðnum og hefur verið slúðrað um að Danijel sé fyrsti af fjórum sem verða teknir inn fyrir mót.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er von á annarri tilkynningu frá KA í dag. Samuel Kroon er nafn sem hefur heyrst í tengslum við KA í morgun.
KA menn eru alls ekki hættir á markaðnum og hefur verið slúðrað um að Danijel sé fyrsti af fjórum sem verða teknir inn fyrir mót.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er von á annarri tilkynningu frá KA í dag. Samuel Kroon er nafn sem hefur heyrst í tengslum við KA í morgun.
Ef rétt reynist þá er KA að landa 29 ára fjölhæfum Svía. Hann er örvfættur og samkvæmt Transfermarkt hefur hann oftast á sínum ferli spilað sem hægri kantmaður en hans aðalstaða er samt skráð sem vinstri bakvörður. Hann hefur spilað á báðum köntum og sem fremsti maður.
Hann var síðast á Örebro í Svíþjóð en varð samningslaus í vetur. Hann á að baki yfir hundrað leiki í næstefstu deild Svíþjóðar og yfir 30 í sænsku úrvalsdeildinni. Samkvæmt Transfermarkt hefur hann skoraði 36 mörk í 246 leikjum og lagt upp 35 mörk á sínum meistaraflokksferli.
Hja Örebro lék hann með Valgeiri Valgeirssyni og Axel Óskari Andréssyni og hjá Nyköping lék hann með Nóa Snæhólm Ólafssyni.
Komnir
Danijel Dejan Djuric frá Króatíu
Diego Montiel frá Vestra
Jeppe Pedersen frá Vestra
Jakob Héðinn Róbertsson frá Völsungi
Breki Hólm Baldursson frá ÍR (var á láni)
Ívar Arnbro Þórhallsson frá Völsungi (var á láni)
Kári Gautason frá HK (var á láni)
Ívar Logi Jóhannesson frá Hetti
Þórhallur Ási Aðalsteinsson frá Hetti
Dagbjartur Búi Davíðsson frá Þór (var á láni)
Bjarki Fannar Helgason frá Hetti/Hugin (var á láni)
Hákon Atli Aðalsteinsson frá Dalvík/Reyni (var á láni)
Árni Veigar Árnason frá Hetti/Hugin (var á láni)
Farnir
Ívar Örn Árnason í Breiðablik
Birnir Snær Ingason í Stjörnuna
Bjarni Aðalsteinsson til Danmerkur
Marcel Römer til Danmerkur
Ingimar Torbjörnsson Stöle til Vals
Jonathan Rasheed til Gautaborgar
Viðar Örn Kjartansson á Selfoss
Andri Fannar Stefánsson
Dagur Ingi Valsson í Keflavík
William Tonning til Svíþjóðar
Athugasemdir



