Joao Cancelo leikmaður portúgalska landsliðsins greindist með covid og verður því ekki með Portúgal á EM. Diogo Dalot hefur verið kallaður inn í hópinn.
Joao Cancelo átti frábært tímabil með Manchester City og átti frábæran leik gegn Ísrael í síðasta leik Portúgal fyrir EM. Hann var með mark og stoðsendingu í 4-0 sigri. Er þetta því mikið áfall fyrir liðið og leikmanninn að sjálfsögðu.
Diogo Dalot, sem var á láni frá Manchester United hjá AC Milan á síðustu leiktíð kemur inn í hópinn í hans stað.
Fyrsti leikur Portúgal er gegn Ungverjum á þriðjudaginn.
Athugasemdir