Dagur Traustason, leikmaður FH, þurfti að fara í aðgerð á liðþófa og verður frá næstu 2-3 mánuðina vegna meiðsla.
Dagur er tvítugur framherji sem hefur skorað tvö mörk í átta deildarleikjum á þessu tímabili. Hann skoraði í fyrstu umferð gegn Stjörnunni, kom inn í byrjunarliðið í leiknum gegn Vestra í leik tvö og skoraði svo sitt annað mark þegar hann innsiglaði sigur FH gegn Val. Það gerir hann að jafnmarkahæsta leikmanni FH á tímabilinu ásamt þremur öðrum.

Hann er uppalinn hjá FH og lék sinn fyrsta keppnisleik í meistaraflokki árið 2021. 2022 var hann hjá ÍH, 2023 hjá Grindavík og fyrri hluta sumarsins í fyrra var hann hjá Þrótti Reykjavík.
Dagur, sem er stór og sterkur leikmaður, er í samkeppni við þá Úlf Ágúst Björnsson, Sigurð Bjart Hallsson og Kristján Flóka Finnbogason í fremstu línu FHinga.
FH er í 10. sæti Bestu deildarinnar eftir tíu leiki. Liðið mætir Fram á útivelli á sunnudag í elleftu umferðinni.
Athugasemdir