Dembélé skoraði eina mark PSG í tapinu gegn Rennes eftir að hafa verið allt í öllu í stórsigri gegn Marseille um síðustu helgi.
Ousmane Dembélé, besti fótboltamaður heims á síðustu leiktíð, var sársvekktur eftir 3-1 tap PSG gegn Rennes í efstu deild franska boltans í gærkvöldi.
PSG er í titilbaráttu og gagnrýndi Dembélé samherja sína í viðtali að leikslokum.
„Á síðustu leiktíð settum við liðið í fyrsta sæti án þess að hugsa um sjálfa okkur og þess vegna afrekuðum við svona mikið," sagði Dembélé. „Þetta er eitthvað sem við þurfum að finna aftur og þá sérstaklega í svona leikjum. Við byrjuðum þennan leik ömurlega.
„Við verðum að sýna meiri þrá til að sigra leikinn, við verðum að spila fyrir Paris Saint-Germain ef við viljum vinna. Ef hver og einn spilar fyrir sjálfan sig þá mun þetta ekki ganga upp, við munum ekki hampa þeim titlum sem við viljum."
28 ára Dembélé er búinn að koma að 18 mörkum í 24 leikjum með PSG á tímabilinu.
13.02.2026 20:19
Frakkland: Evrópumeistararnir töpuðu
Athugasemdir




