Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
   fös 13. febrúar 2026 20:19
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: Evrópumeistararnir töpuðu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Rennes 3 - 1 PSG
1-0 Mousa Tamari ('34)
2-0 Esteban Lepaul ('69)
2-1 Ousmane Dembele ('72)
3-1 Breel Embolo ('81)

Evrópumeistarar PSG heimsóttu Rennes í fyrsta leik helgarinnar í efstu deild franska boltans og töpuðu óvænt.

Mousa Tamari skoraði eina markið í fyrri hálfleik eftir skyndisókn en PSG var talsvert hættulegri aðilinn. Gestirnir komust nálægt því að skora en tókst ekki að setja boltann framhjá Brice Samba, fyrrum markverði Nottingham Forest.

Í síðari hálfleik tvöfaldaði Esteban Lepaul forystu heimamanna þrátt fyrir áframhaldandi yfirburði Frakklandsmeistara PSG. Lepaul stangaði hornspyrnu í netið á 69. mínútu og minnkaði Ousmane Dembélé, besti fótboltamaður heims, muninn skömmu síðar með sjaldgæfu skallamarki.

PSG lagði allt í sóknarleikinn en fékk það í bakið þegar Breel Embolo skoraði eftir skyndisókn á 81. mínútu. PSG fékk færi til að minnka muninn en skoraði ekki, svo lokatölur urðu 3-1 eftir frábæra frammistöðu hjá Samba á milli stanganna.

PSG er með 51 stig eftir 22 umferðir og getur misst toppsætið til spútnik liðs Lens, sem er tveimur stigum eftirá í titilbaráttunni. Lens heimsækir Paris FC annað kvöld.

Þess má geta að PSG vann 5-0 á heimavelli gegn Rennes þegar liðin mættust fyrir rúmum tveimur mánuðum síðan.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner
banner