Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   lau 14. febrúar 2026 15:57
Ívan Guðjón Baldursson
Emilía og Hlín byrjuðu í góðum sigrum
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var nóg um að vera í hjá atvinnukonunum okkar sem leika erlendis í dag.

Í þýska boltanum lék Emilía Kiær Ásgeirsdóttir allan leikinn á kantinum hjá RB Leipzig sem vann á heimavelli gegn Nürnberg.

Leipzig vann 3-1 og er með 20 stig eftir 18 umferðir, tíu stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Ingibjörg Sigurðardóttir var þá í byrjunarliði Freiburg og lék fyrstu 54 mínúturnar í jafntefli gegn Union Berlin. Henni var skipt af velli í stöðunni 0-1 en lokatölur urðu 1-1.

Freiburg er með 27 stig eftir 18 umferðir, fjórum stigum frá meistaradeildarsæti.

Í Belgíu var Andrea Rut Bjarnadóttir í byrjunarliði Anderlecht sem vann flottan sigur á Standard Liege. Anderlecht er í öðru sæti með 41 stig eftir 17 umferðir.

Í ítalska boltanum var Birta Georgsdóttir í byrjunarliði Genoa sem tapaði botnslagnum gegn Ternana. Genoa situr eftir með 7 stig eftir 14 umferðir, tveimur stigum frá öruggu sæti.

Hlín Eiríksdóttir byrjaði þá í frábærum sigri Fiorentina á útivelli gegn AC Milan. Hlín spilaði fyrstu 72 mínúturnar og þegar henni var skipt af velli komu Katla Tryggvadóttir og Iris Ómarsdóttir inn af bekknum.

Fiorentina vann 0-1 og er með 21 stig eftir 14 umferðir, fimm stigum frá meistaradeildarsæti.

Að lokum mættust Linköping og Växjö í æfingaleik þar sem Växjö hafði betur eftir mikla spennu.

Leipzig 3 - 1 Nurnberg

Freiburg 1 - 1 Union Berlin

Anderlecht 3 - 0 Standard Liege

Ternana 3 - 1 Genoa

Milan 0 - 1 Fiorentina

Linköping 3 - 4 Vaxjö

Athugasemdir
banner
banner