Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 14. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Orri Steinn heimsækir Bernabéu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Espanyol tekur á móti Celta Vigo í fyrsta leik dagsins í efstu deild spænska boltans en það er aðeins eitt stig sem skilur liðin að í evrópubaráttunni.

Espanyol virtist ætla að vera spútnik lið tímabilsins á Spáni en hefur átt hörmulegu gengi að fagna á nýju ári. Liðið er aðeins búið að ná í eitt stig úr sex leikjum eftir áramót, en situr þrátt fyrir það ennþá í evrópusæti sem stendur. Það getur breyst með sigri Celta í dag.

Villarreal getur svo stokkið upp í þriðja sæti með sigri gegn Getafe áður en Sevilla og Alavés eigast við í fallbaráttunni. Liðin eru jöfn með 25 stig eftir 23 umferðir, aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Lokaleikur dagsins fer fram í höfuðborginni þar sem stórveldi Real Madrid tekur á móti Orra Steini Óskarssyni og félögum í Real Sociedad.

Real Madrid getur klifrað yfir Barcelona í titilbaráttunni með sigri, en Börsungar mæta til leiks á mánudagskvöldið.

Orri kom inn af bekknum og skoraði síðasta mark leiksins í sigri gegn Elche í síðustu umferð. Sociedad er á miklu skriði og er aðeins þremur stigum frá evrópusæti eftir hörmulega byrjun á tímabilinu.

Leikir dagsins
13:00 Espanyol - Celta Vigo
15:15 Getafe - Villarreal
17:30 Sevilla - Alaves
20:00 Real Madrid - Real Sociedad
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 27 22 1 4 72 26 +46 67
2 Real Madrid 28 21 3 4 60 24 +36 66
3 Atletico Madrid 28 17 6 5 47 25 +22 57
4 Villarreal 28 17 4 7 51 33 +18 55
5 Betis 27 11 10 6 42 34 +8 43
6 Celta 27 10 10 7 37 30 +7 40
7 Espanyol 27 10 7 10 34 40 -6 37
8 Real Sociedad 27 9 8 10 40 41 -1 35
9 Getafe 28 10 5 13 23 30 -7 35
10 Athletic 28 10 5 13 30 40 -10 35
11 Osasuna 27 9 7 11 32 32 0 34
12 Girona 28 8 10 10 31 43 -12 34
13 Valencia 28 8 8 12 30 42 -12 32
14 Vallecano 27 7 10 10 27 33 -6 31
15 Sevilla 27 8 7 12 35 42 -7 31
16 Alaves 28 7 7 14 26 38 -12 28
17 Elche 28 5 11 12 36 45 -9 26
18 Mallorca 27 6 7 14 31 44 -13 25
19 Levante 27 5 7 15 29 45 -16 22
20 Oviedo 28 4 9 15 18 44 -26 21
Athugasemdir
banner
banner