Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fös 14. mars 2025 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho: Vona að þetta séu ekki afleiðingar þess sem gerðist í Búdapest
Mynd: EPA
Jose Mourinho, þjálfari Fenerbahce í Tyrklandi, fann sig knúinn til að gagnrýna dómgæsluna í tapi liðsins gegn Rangers í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í gær.

Mourinho taldi lið sitt hafa átt skilið að fá að minnsta kosti þrjár vítaspyrnur í leiknum sem hefði þá gefið liðinu tækifæri á að komast beint áfram.

Fenerbahce kom til baka í seinni leiknum eftir að hafa tapað fyrri 3-1, en endaði síðan á að tapa í vítakeppni í gær.

Portúgalski þjálfarinn heldur í þá samsæriskenningu að UEFA og dómarasambandið sé að refsa honum fyrir hegðun hans í kringum úrslitaleik Evrópudeildarinnar fyrir tveimur árum er hann sagði frammistöðu Anthony Taylor, dómara leiksins, skammarlega eftir að Roma tapaði fyrir Sevilla.

Taylor varð fyrir miklu aðkasti af hálfu stuðningsmanna Roma á flugvellinum og var málið litið alvarlegum augum. Mourinho var dæmdur í fjögurra leikja bann fyrir að hafa misþyrmt Taylor andlega.

„Fjórði dómarinn var fínn gaur, ekki hrokafullur eins og aðaldómarinn. Hann reyndi að vinna sína vinnu og hélt bekknum rólegum. Ég var sá eini sem var rólegur og sérstaklega þeir sem voru fyrir framan fartölvuna. Það er erfitt að stjórna þessu, en ég vona að allt sem gerðist fyrir liðið mitt frá fyrsta degi tímabilsins séu ekki afleiðingar þess sem gerðist í úrslitaleiknum í Búdapest.“

„Það sem hefur gerst fyrir okkur síðan ég tók út leikbann mitt frá úrslitaleiknum er að við spiluðum ekki í Meistaradeildinni út af vítaspyrnu á 120. mínútu, brot sem aðeins fjórði dómari leiksins sá.“

„Í dag komum við hingað og ein besta VAR-tæknin í heiminum sá ekki eina af þremur vítaspyrnunum. Ég vona að þetta sé bara tilviljunarkennt.“

„Leikbannið kostaði mig og vonandi er því nú lokið. Ég vona að þetta sé bara óheppni,“
sagði Mourinho.

Mourinho passaði sig að orða hlutina rétt en það má augljóslega sjá að hann er að skjóta á UEFA, fótboltasamband Evrópu, og dómarastéttina í heild sinni. Portúgalinn hefur reglulega gagnrýnt dómgæsluna á þessu tímabili og komið sér í klandur fyrir það.

Hann er einmitt í augnablikinu að taka út fjögurra leikja bann í tyrknesku deildinni fyrir ummæli sín um tyrkneska dómara og var það ekki í fyrsta og líklega ekki síðasta sinn sem hann gagnrýnir þá.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner