Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 12:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Er of ungur til að spila í ensku úrvalsdeildinni
JJ Gabriel.
JJ Gabriel.
Mynd: Instagram/jjnr10
JJ Gabriel er of ungur til að spila með Manchester United á þessu tímabili. Þessi 15 ára gamli leikmaður hefur slegið í gegn með U18 liði United á þessu tímabili og vakið mikla athygli, en hann má hins vegar ekki spila með aðalliðinu.

Gabriel var 14 ára gamall þegar tímabilið byrjaði en hann þurfti að vera orðinn 15 ára til að geta komið við sögu á þessari leiktíð með aðalliðinu.

Michael Carrick, stjóri Man Utd, var spurður út í Gabriel á blaðamannafundi í gær.

„Hann getur ekki spilað með aðalliðinu, hann er of ungur," sagði Carrick.

„JJ er að standa sig mjög vel. Við erum með nokkra mjög góða leikmenn í akademíunni og við reynum eins mikið og við getum að koma þeim inn í aðalliðshópinn."

Gabriel byrjaði að æfa með aðalliði Man Utd þegar hann var aðeins 14 ára gamall. Barcelona hefur sýnt honum mikinn áhuga en United vonast til þess að halda þessari vonarstjörnu í sinni röðum.
Athugasemdir
banner
banner
banner