Þessir tveir hafa mæst nokkrum sinnum á þeim tæpu þremur árum sem þeir hafa verið í úrvalsdeildinni.
Arsenal er að leggja áherslu á að framlengja samninga við lykilmenn liðsins og er Hollendingurinn Jurriën Timber næstur ásamt Declan Rice.
Timber er með rétt rúmlega tvö ár eftir af samningi og hefur fest sig í sessi sem afar mikilvægur hlekkur í byrjunarliðinu. Hann hirti sætið af Ben White og þykir einn af bestu bakvörðum úrvalsdeildarinnar í dag.
Timber, sem er 24 ára gamall, hefur komið með beinum hætti að 11 mörkum í 42 leikjum á tímabilinu. Hann er öflugur í sóknarleik Arsenal en hans stærsti styrkur er varnarleikurinn.
Enskir fjölmiðlar greina frá því að samkomulag sé í höfn. Viðræðurnar hafa verið í gangi undanfarna mánuði og ætti Timber að skrifa undir á næstu vikum. Svipaða sögu er að segja af Declan Rice.
13.03.2026 15:20
Arsenal í samningsviðræðum við Rice
Athugasemdir




