Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 11:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Maður var klökkur bara"
PEI
Ída Marín Hermannsdóttir.
Ída Marín Hermannsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ída í leik með landsliðinu.
Ída í leik með landsliðinu.
Mynd: EPA
Ída Marín Hermannsdóttir var bjartasti punkturinn í erfiðum glugga hjá kvennalandsliðinu á dögunum. Hún kom óvænt inn í byrjunarliðið fyrir leiki gegn Spáni og Englandi og stóð sig frábærlega.

„Hún kom á óvart. Mér fannst það frábært hjá þjálfarateyminu að hún byrji. Hún var heilt yfir besti leikmaður liðsins í þessum tveimur leikjum," sagði Magnús Haukur Harðarson í Uppbótartímanum þegar rætt var um Ídu.

Ída Marín kemur af miklum fótboltaættum en foreldrar hennar spiluðu bæði með landsliðinu. Faðir hennar, Hermann Hreiðarsson, var mættur út til Englands til að fylgjast með henni spila á móti Evrópumeisturunum.

„Maður var klökkur bara, þetta var æðislegt," sagði Hermann. „Hún er búin að vinna fyrir þessu. Hún hefur verið í Bandaríkjunum í háskóla og staðið sig frábærlega. Hún var frábær í þessum leikjum og ég er hrikalega stoltur."

Ída var á æfingu með föður sínum þegar hún fékk kallið í landsliðið.

„Þetta kom henni að óvörum. Við vorum nýbúin á æfingu en hún vildi bara fara á æfingu aftur. Þetta hefur verið stefnan hjá henni. Að fá kallið í þessa tvo leiki var risastórt fyrir hana."

Getur orðið besti leikmaðurinn í þessari deild
Ída Marín spilar með FH hér heima en Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var einnig spurður út í hana í viðtali núna á dögunum.

„Þetta var bara frábært. Hún sýndi úr hverju hún er gerð. Hún leysti sínar varnarfærslur gríðarlega vel. Hún var með reynslubolta fyrir aftan sig sem hjálpuðu henni örugglega," sagði Guðni.

„Hún er leikmaður sem nýtti gluggann. Þess vegna erum við að tala um hana núna."

„Ef hún heldur rétt á spilunum getur hún orðið besti leikmaðurinn í þessari deild," sagði Guðni jafnframt.
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Athugasemdir
banner