Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 16:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Bayern fékk tvö rauð en tapaði samt ekki
Luis Diaz skoraði og fékk rautt spjald
Luis Diaz skoraði og fékk rautt spjald
Mynd: EPA
Dortmund vann þægilegan sigur.
Dortmund vann þægilegan sigur.
Mynd: EPA
Bayern München endaði með níu leikmenn inn á vellinum gegn Bayer Leverkusen en tókst samt að ná jafntefli.

Leverkusen komst yfir snemma í leiknum og undir lok fyrri hálfleiks fékk Nicolas Jackson að líta beint rautt spjald fyrir hrikalega tæklingu. Jackson fékk tækifæri þar sem Harry Kane er búinn að vera tæpur.

En einum færri jafnaði Bayern, Luis Diaz var þar að verki eftir undirbúning frá Michael Olise. Diaz fékk svo sitt annað gula spjald á 84. mínútu þegar hann reyndi að fiska vítaspyrnu.

En Leverkusen tókst ekki að skora sigurmarkið. Þeir skoruðu reyndar mark sem var dæmt af vegna rangstöðu, ótrúlega tæpt.

Bayern situr á toppnum með níu stiga forystu á Dortmund sem vann þægilegan sigur á Augsburg í dag. Leverkusen er í sjötta sætinu.

Þá vann Frankfurt sigur á Heidenheim og Hoffenheim og Wolfsburg skildu jöfn.

Borussia D. 2 - 0 Augsburg
1-0 Karim Adeyemi ('13 )
2-0 Luca Reggiani ('59 )

Hoffenheim 1 - 1 Wolfsburg
0-1 Konstantinos Koulierakis ('65 )
1-1 Grischa Promel ('83 )

Eintracht Frankfurt 1 - 0 Heidenheim
1-0 Arnaud Kalimuendo ('53 )
Rautt spjald: Robin Koch, Eintracht Frankfurt ('73)

Bayer 1 - 1 Bayern
1-0 Aleix Garcia ('6 )
1-1 Luis Diaz ('69 )
Rautt spjald: Nicolas Jackson, Bayern ('42), Luis Diaz, Bayern ('84)
Athugasemdir
banner