Umboðsmanni Sandro Tonali, miðjumanns Newcastle, finnst ekki leiðinlegt að tjá sig.
Giuseppe Riso, umboðsmaður Tonali, segir núna að ætlunin hafi alltaf verið að vekja áhuga stærstu félaga heims og miðjumaðurinn sé í dag verðmætasti ítalski leikmaðurinn.
Giuseppe Riso, umboðsmaður Tonali, segir núna að ætlunin hafi alltaf verið að vekja áhuga stærstu félaga heims og miðjumaðurinn sé í dag verðmætasti ítalski leikmaðurinn.
Tonali hefur meðal annars verið orðaður við Arsenal og Manchester City að undanförnu en það er líklegt að hann fari frá Newcastle í sumar.
„Það er sagt að toppfélög, félög sem vilja vinna ensku úrvalsdeildina, séu á eftir honum. Það var markmiðið þegar hann fór til Englands, að breyta honum í stjörnu."
„Hann er í dag verðmætasti ítalski leikmaðurinn og er bara einn verðmætasti leikmaður í heimi," sagði Riso.
„Ef hann spilar vel á HM verða þá Arsenal og City á hælum hans, ég veit það ekki en mér finnst það mjög líklegt."
Athugasemdir



