Linda Líf Boama steig sín fyrstu skref með A-landsliðinu þegar Ísland lagði Úkraínu 1-0 í kvöld. Hún fékk sínar fyrstu mínútur í treyjunni og lýsti mikilli ánægju með bæði frumraunina og sigurinn eftir leik.
„Já, bara geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur. Þetta var liðssigur og allir stóðu sig vel. Bara geggjað að vera partur af þessu verkefni,“ sagði Linda Líf eftir leik.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 0 Úkraína
Hún viðurkennir að hafa fundið fyrir smá stressi þegar hún steig sín fyrstu skref inn á völlinn, en það hafi fljótt horfið.
„Smá stress í byrjun, en svo náði maður bara að stilla sig inn á tempóið strax. Allir voru að tala við mann á vellinum og leiðbeina, þannig að það var létt að komast í gírinn“
Aðstæður voru krefjandi þar sem völlurinn var blautur, en það kom henni ekki á óvart.
„Já, það var náttúrulega smá blautt. Þetta er Ísland, þannig að maður er vanur því. Það er ekkert að væla yfir veðrinu, þetta var ekkert mál.“
Linda segir einnig að stelpurnar hafi tekið vel á móti henni.
„Það er ótrúlega létt að komast inn í þennan hóp. Allir eru mjög nánir og bara tekið ótrúlega vel á móti mér. Gaman að vera hérna."
Hún hafði sinn nánasta stuðningshóp í stúkunni og segir það hafa skipt miklu máli.
„Já, kjarnafölskyldan. Það var ótrúlega gott að þau sátu nálægt og að geta horft upp og fengið stuðning. Svo var líka bara skemmtilega mætt, ótrúlega mikilvægt að sjá marga Íslensdinga í stúkunni, það gerði mikið fyrir okkur og 100% hjálpaði okkur að fá þessi þrjú stig í dag.“
Næsti leikur gegn Englandi er handan við hornið og Linda er spennt fyrir framhaldinu.
„Já bara spennt, við verðum 100% að byggja ofan á þessari frammistöðu. Við fengum fullt af færum og varið líka vel frá okkur. Þannig fínpússa smá og við ættum alveg að geta gefið þeim svaka leik."
"Lofa stuði og stemmingu þannig bara allir að mæta."
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.























