„Frammistaðan var sæmileg, þetta var ekki okkar besti leikur. En það er alltaf mikilvægt að vinna." sagði Birkir Bjarnason eftir 1-0 sigur Íslands gegn Færeyjum í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 0 Færeyjar
Eina mark leiksins kom eftir skot Birkis Bjarnasonar en boltinn fór í Kolbein Sigþórsson áður en hann fór inn.
„Ef þetta fór í hann þá er þetta hans mark. Ég get ekkert gert kröfu á að eiga það ef þetta sést í sjónvarpinu."
Framtíð Birkis er í óvissu. Hann er enn hjá Pescara sem féll í B-deildina ítölsku en hann hefur verið orðaður við Livorno og Hellas Verona sem leika í A-deildinni.
„Ég veit ekki enn hvað gerist. Það á bara eftir að koma ljós. Það er einhver áhugi og það gæti enn eitthvað gerst. Annars lítur þetta bara mjög vel út hjá Pescara, það hefur gengið vel á undirbúningstímabilinu," sagði Birkir en viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.






















