Everton vill fá Grealish á lægra verði - Man Utd á eftir Wharton - West Ham hafnaði tilboði Chelsea
   sun 14. september 2025 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sláandi tölfræði Nottingham Forest í fyrsta leik Postecoglou
Mynd: EPA
Ange Postecoglou stýrði Nottingham Forest í fyrsta sinn í gær þegar liðið tapaði gegn Arsenal 3-0 í úrvalsdeildinni.

Postecoglou var þekktur fyrir mjög áhættusækinn sóknarbolta sem stjóri Tottenham þar sem varnarlínan var hátt uppi á vellinum. Hann tók við af Nuno Espirito Santo sem er þekktur fyrir mun varnarsinnaðari nálgun.

Nottingham Forest átti hins vegar í miklum vandræðum gegn Arsenal í gær.

The xG Philosophy á X sýndi ótrúlega tölfræði Nottingham Forest gegn Arsenal en liðið var aðeins með 0.18 í xG í leiknum. Forest undir stjórn Espirito Santo var aldrei með svo lágt xG.


Athugasemdir
banner
banner