Harry Kane komst í sögubækurnar í gær þegar hann skoraði tvennu í sigri FC Bayern gegn Werder Bremen.
Kane er þar með búinn að skora 500 mörk í keppnisleikjum og er fyrsti Englendingur sögunnar til að afreka það. Hann var þegar orðinn markahæsti Englendingur sögunnar eftir að hann tók framúr Jimmy Greaves í desember síðastliðnum.
Kane er 32 ára gamall og er að eiga magnað tímabil með FC Bayern, þar sem hann er kominn með 41 mark í 35 leikjum í öllum keppnum með Þýskalandsmeisturunum auk þess að vera með fimm mörk í fimm keppnisleikjum með enska landsliðinu síðasta haust.
Þessi öflugi framherji er nú þegar goðsögn á Englandi. Auk þess að vera markahæsti Englendingur sögunnar er hann markahæsti leikmaður í sögu enska landsliðsins með 78 mörk.
Þar að auki er hann langmarkahæsti Englendingurinn í sögu Meistaradeildar Evrópu með 48 mörk, 18 meira heldur en Wayne Rooney.
Kane er þó ekki markahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, hann er næstmarkahæstur með 213 mörk. Alan Shearer er markahæstur með 260 mörk.
Þess má geta að af 500 mörkum sem Kane hefur skorað á ferlinum hafa um 100 komið af vítapunktinum. Hann hefur skorað 318 mörk með hægri fæti og 94 með hausnum. Þá hafa 49 af mörkum hans verið skoruð með skoti utan vítateigs.
22.12.2025 09:00
Kane fljótastur að koma að 100 mörkum
Athugasemdir





