Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
   sun 15. febrúar 2026 17:28
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Atlético steinlá gegn Rayo Vallecano
Athletic að blanda sér í evrópubaráttuna
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Rayo Vallecano tók á móti Atlético Madrid í höfuðborgarslag í efstu deild spænska boltans og vann afar sjaldgæfan sigur á nágrönnum sínum.

Atlético hefur haft mikla yfirburði í innbyrðisviðureignum þessara liða í gegnum árin en í dag voru heimamenn í liði Rayo miklu sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum.

Þeir fengu góð færi til að skora en boltinn virtist ekki vilja rata í netið, ekki fyrr en á lokamínútunum. Fran Pérez náði forystunni á 40. mínútu eftir frábæran undirbúning frá bakverðinum Andrei Ratiu sem sýndi laglega takta áður en hann gaf lága fyrirgjöf.

Fimm mínútum síðar tvöfaldaði Óscar Valentín forystu heimamanna eftir að samherjar hans unnu boltann hátt uppi á vellinum. Staðan var því 2-0 í leikhlé og gerði Diego Simeone þrefalda skiptingu á 56. mínútu.

Simeone gerði tvær skiptingar til viðbótar skömmu síðar en þær skiluðu ekki miklum árangri. Atlético var sterkari aðilinn í síðari hálfleik og skapaði nokkur færi en tókst ekki að minnka muninn. Þess í stað innsiglaði Nobel Mendy frækinn sigur heimamanna með skalla eftir hornspyrnu, svo lokatölur urðu 3-0.

Vallecano klifrar upp úr fallsvæðinu með þessum sigri á meðan Atlético deilir þriðja sætinu áfram með Villarreal.

Fyrr í dag átti Real Oviedo heimaleik gegn Athletic Bilbao og var staðan 1-0 í leikhlé eftir rosalegan sprett frá Ilyas Chaira. Hann stakk varnarmenn Athletic af og kláraði meistaralega.

Fyrri hálfleikurinn var afar tíðindalítill en gestirnir frá Bilbao tóku öll völd á vellinum í síðari hálfleik. Mikel Jauregizar jafnaði metin með gullfallegu skoti af um 25 metra færi sem fór í stöngina og inn, en Jauregizar var nálægt fullum spretthraða þegar hann lét vaða.

Athletic hélt áfram að sækja og skóp vítaspyrnu á 71. mínútu sem endaði á að ráða úrslitum. Oihan Sancet skoraði af punktinum til að tryggja stigin þrjú.

Oviedo situr áfram á botni deildarinnar með 16 stig, átta stigum frá öruggu sæti.

Athletic er um miðja deild með 31 stig, fjórum stigum frá evrópusæti.

Rayo Vallecano 3 - 0 Atletico Madrid
1-0 Fran Perez ('40 )
2-0 Oscar Valentin ('45 )
3-0 Nobel Mendy ('76 )

Oviedo 1 - 2 Athletic Bilbao
1-0 Ilyas Chaira ('30 )
1-1 Mikel Jauregizar ('58 )
1-2 Oihan Sancet ('71 , víti)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 24 19 3 2 53 19 +34 60
2 Barcelona 23 19 1 3 63 23 +40 58
3 Villarreal 23 14 3 6 44 26 +18 45
4 Atletico Madrid 24 13 6 5 38 21 +17 45
5 Betis 23 10 8 5 37 28 +9 38
6 Espanyol 24 10 5 9 29 33 -4 35
7 Celta 24 8 10 6 32 27 +5 34
8 Real Sociedad 24 8 7 9 34 35 -1 31
9 Athletic 24 9 4 11 27 34 -7 31
10 Osasuna 24 8 6 10 28 28 0 30
11 Getafe 24 8 5 11 20 28 -8 29
12 Sevilla 24 7 5 12 31 39 -8 26
13 Alaves 24 7 5 12 21 30 -9 26
14 Girona 23 6 8 9 22 37 -15 26
15 Elche 24 5 10 9 31 35 -4 25
16 Vallecano 23 6 7 10 21 30 -9 25
17 Mallorca 23 6 6 11 28 37 -9 24
18 Valencia 23 5 8 10 23 37 -14 23
19 Levante 22 4 6 12 26 38 -12 18
20 Oviedo 23 3 7 13 13 36 -23 16
Athugasemdir
banner
banner
banner