Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 15. mars 2023 23:36
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikar kvenna: Annar sigur ÍA
Sunna Rún gerði fyrra mark ÍA
Sunna Rún gerði fyrra mark ÍA
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
ÍA 2 - 1 ÍH
1-0 Sunna Rún Sigurðardóttir ('17 )
1-1 Thelma Karen Pálmadóttir ('48 )
2-1 Erna Björt Elíasdóttir ('51 )

ÍA vann annan leik sinn í C-deild Lengjubikarsins í kvöld er það marði ÍH, 2-1, í Akraneshöllinni.

Hin afar efnilega Sunna Rún Sigurðardóttir kom ÍA í forystu á 17. mínútu en ÍH svaraði í upphafi síðari hálfleiks er Thelma Karen Pálmadóttir kom boltanum í netið.

Þremur mínútum eftir jöfnunarmark ÍH skoruðu Skagakonur sigurmarkið. Erna Björt Elíasdóttir gerði það og ÍA með fullt hús stiga eftir tvær umferðir.

ÍA er með því 6 stig í efsta sæti riðils 1 á meðan ÍH er í næst neðsta sæti og án stiga, enda fyrsti leikur liðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner