Amorim gæti stigið frá borði ef slæmt gengi Man Utd heldur áfram - Bayern ætlar ekki að bjóða Sane hærri samning
   þri 13. maí 2025 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England í dag - Sunderland og Coventry berjast um sæti í úrslitum
Eliezer Mayenda
Eliezer Mayenda
Mynd: Sunderland
Sunderland fær Coventry í heimsókn í kvöld í seinni leik liðanna í undanúrslitum umspilsins um sæti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Sunderland er með 2-1 forystu eftir fyrri leikinn en Eliezer Mayenda skoraði sigurmarkið undir lok leiksins.

Liðin berjast um að mæta Sheffield í úrslitum á Wembley en Sheffield fór illa með Bristol City og vann viðureignina samanlagt 6-0 en ekkert lið hefur unnið með jafn miklum mun í umspilinu.

Sunderland hafnaði í 4. sæti deildarinnar og Coventry í því fimmta. Sunderland tapaði hins vegar fimm síðustu leikjum sínum í deildinni á meðan Coventry nældi í sjö stig.

þriðjudagur 13. maí

ENGLAND: Championship, Playoffs
19:00 Sunderland - Coventry (2-1)
Athugasemdir
banner