Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
banner
   sun 15. mars 2026 13:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Thelma og Fanney áfram í sænska bikarnum - Hafrún Rakel á skotskónum
Kvenaboltinn
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir voru í byrjunarliði Hacken sem vann öruggan sigur á AIK í lokaumferð riðlakeppni sænska bikarsins í dag.

Thelma Karen var tekin af velli í hálfleik en þá var Hacken 1-0 yfir. Leiknum lauk með 3-0 sigri liðsins.

Hacken er komið áfram en liðið nældi í fullt hús stiga í þremur leikjum í riðlakeppninni.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir kom Bröndby yfir gegn Fortuna Hjörring í toppslag í dönsku deildinni. Leiknum lauk með 2-1 sigri liðsins. Bröndby er íi 3. sæti með 27 stig eftir 15 umferðir. Liðið er tveimur stigum á eftir Fortuna sem er í 2. sæti og sex stigum á eftir toppliði Köge.
Athugasemdir
banner