Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fös 15. ágúst 2025 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hutchinson á leið til Forest
Mynd: EPA
Omari Hutchinson er á leið til Nottingham Forest frá Ipswich.

Félögin eru að nálgast samkomulag en Forest borgar 37,5 milljónir punda fyrir leikmanninn. Sky Sports greinir frá þessu.

Ipswich hafnaði áður 35 milljón punda tilboði í leikmanninn frá Forest. Það var riftunarákvæði í samningi Hutchinson eftir að Ipswich féll úr úrvalsdeildinni en ákvæðið er runnið út.

Hutchinson var ekki í leikmannahópi Ipswich gegn Birmingham í opnunarleik Championship deildarinnar fyrir viku síðan vegna veikinda.

Hann vill snúa aftur í úrvalsdeildina en Brentford hafði einnig áhuga á honum fyrr í sumar en félagið náði ekki samkomulagi við Ipswich.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner