Atlético Madríd og Real Sociedad eigast við í úrslitaleik spænska konungsbikarsins á morgun en þar getur Orri Steinn Óskarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, unnið sinn fyrsta titil með Sociedad-mönnum.
Real Sociedad fór nokkuð þægilega leið inn í bikarúrslitin miðað við Atlético,
Sociedad vann Osasuna, Deportivo Alaves og nágranna sína í Athletic á leið sinni í úrslitaleikinn á meðan Atlético kastaði Spánarmeisturum Barcelona, liði Real Betis og Deportivo La Coruna ásamt einu neðri deildarliði.
Orri Steinn kom til Sociedad árið 2024 frá FCK og getur nú unnið fyrsta titilinn með spænska liðinu. Hann hefur verið heitur í síðustu leikjum og gæti fengið stóra rullu í úrslitaleiknum sem er spilaður klukkan 19:00 á Estadio de La Cartuja-leikvanginum í Seville-borg.
Sociedad hefur þrisvar sinnum unnið bikarkeppnina og síðast árið 2020 á meðan Atlético hefur unnið hana tíu sinnum, en þrettán eru liðin frá síðasta titli.
Leikur helgarinnar:
Laugardagur:
19:00 Atletico Madrid - Real Sociedad



