Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   sun 17. ágúst 2025 17:13
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið ÍA og Víkings: Ingvar í markið - 5 breytingar hjá gestunum
Ingvar kemur aftur í markið hjá Víkingi
Ingvar kemur aftur í markið hjá Víkingi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA og Víkingur eigast við í 19. umferð Bestu deildar karla á ELKEM-vellinum á Akranesi klukkan 18:00 í dag.

Lestu um leikinn: ÍA 0 -  1 Víkingur R.

Skagamenn sitja á botninum með 16 stig og þurfa sárlega á sigri að halda á meðan Víkingur getur saxað á forskot Vals á toppnum.

Lárus Orri Sigurðsson gerir þrjár breytingar frá 3-2 tapi liðsins gegn FH fyrir sex dögum. Gísli Laxdal Unnarsson, Baldvin Þór Berndsen og Steinar Þorsteinsson koma inn fyrir Hlyn Sævar Jónsson, Viktor Jónsson og Jón Gísla Eyland Gíslason.

Sölvi Geir Ottesen gerir á meðan fimm breytingar frá 4-0 tapinu gegn Bröndby í forkeppni Sambandsdeildarinnar í miðri viku, en Ingvar Jónsson, Sveinn Gísli Þorkelsson, Viktor Örlygur Andrason, Óskar Borgþórsson og Davíð Örn Atlason koma allir inn í liðið.

Pálmi Rafn Arinbjörnsson, Daníel Hafsteinsson, Róbert Orri Þorkelsson, Tarik Ibrahimagic og Karl Friðleifur Gunnarsson koma allir á bekkinn.
Byrjunarlið ÍA:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
0. Erik Tobias Sandberg
3. Johannes Vall
5. Baldvin Þór Berndsen
7. Haukur Andri Haraldsson
10. Steinar Þorsteinsson
15. Gabríel Snær Gunnarsson
16. Rúnar Már S Sigurjónsson (f)
17. Gísli Laxdal Unnarsson
19. Marko Vardic
22. Ómar Björn Stefánsson

Byrjunarlið Víkingur R.:
1. Ingvar Jónsson (m)
0. Oliver Ekroth
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason
9. Helgi Guðjónsson
19. Óskar Borgþórsson
23. Nikolaj Hansen
24. Davíð Örn Atlason
25. Valdimar Þór Ingimundarson
32. Gylfi Þór Sigurðsson
Slapp
Athugasemdir
banner
banner
banner